top of page

Nýtt aðalskipulag á suðausturhorninu

  • 2 days ago
  • 1 min read

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur á liðnum árum þurft að takast á við margvísleg skipulagsverkefni, einkum tengd þróun í ferðaþjónustu. Við mótun tillögu að nýju aðalskipulagi, sem nýlega var birt í Skipulagsgátt, var lögð áhersla á að setja fram markmið og áherslur sem nýst gætu vel við að taka skipulagsákvarðanir um slík verkefni í framtíðinni.



Einnig var þéttbýlið tekið til ítarlegrar skoðunar. Á grunni greiningar á byggðamynstri og bæjarmynd var sett fram stefna fyrir Höfn, sem annars vegar snýr að landnotkun, gatnakerfi og stígakerfi og hinsvegar að mótun opinna svæða og annarra almenningsrýma hvað varðar rýmismyndun, gróður, yfirborð og götugögn. 

Aðalskipulagstillöguna er hægt að skoða í Skipulagsgátt og nánar má lesa um aðlskipulagsverkefnið á vefnum https://www.hornafjorduradalskipulag.is/




 
 
 

Comments


Sími 582 5000

  • Facebook
  • Instagram
  • Twitter

Alta

Ármúla 32

108 Reykjavík

Ísland

Kt. 630401-3130 

bottom of page