Skipulagsstofnun hefur staðfest endurskoðað aðalskipulag Seltjarnarnesbæjar en Alta veitti ráðgjöf við endurskoðunina í samstarfi við Skipulag og hönnun ehf. Megindrættir skipulagsins hafa lítið breyst en áherslumunur er í ýmsum atriðum. Skipulagsákvæði er ítarlegri en áður og framsetning skýrari. Landfræðileg gögn eru í samræmi við fram komnar hugmyndir um stafrænt skipulag og er þetta aðalskipulag að öllum líkindum það fyrsta sem þannig er upp byggt.